
Betri Þrif Verkmenn sf. er fjölskyldufyrirtæki með metnað, eigendur og starfsfólk hafa frá upphafi lagt mikin metnað í vandaða vinnu og góða þjónustu.
Fylgst er vel með öllum nýjungum í hreingerningum og efnum til að tryggja viðskiptavinum Betri Þrif og betri vinnuaðferðir, starfsmenn eru vel þjálfaðir til að ná fram vandaðri vinnu og gæðum.
Betri Þrif hefur það markmið að vera í farabroddi í sinni starfsgrein og leitast við að ráða til sín framúskarandi starfsfólk.
Við trúum því að starfsánægja og efling starfsfólks sé lykilinn að ánægðum viðskiptavini, góðri þjónustu og árangri.
Við höfum meira að bjóða.
Laus störf
Starfsmaður þrifa og hreingerninga
Starfslýsing
Unnið er við hreingerningar og þrif sem Betri Þrif eru með fyrir viðskiptavini okkar, til að mynda almenn þrif, glervörn á gleri, viðhald gólfa, rykhreinsanir, iðnaðarþrif, sótthreinsun, bílaþrif, húsgagnahreinsun, hæðavinna, viðhald véla, tækja og húsnæðis ásamt ræstingum, og tilfallandi verkefnum frá verkefnastjóra.
Þú kemur til með að vinna með samstilltum hóp einstaklinga sem hefur það að markmiði að viðhalda góðu orðspori Betri Þrif með framúrskarandi þjónustu og vandvirkum vinnubrögðum.
Starf starfsmans þrifa
50% starf,
Um er að ræða 50% starf sem unnið er alla virka daga auk tilfallandi verkefna á öðrum tímum samkvæmt samkomulagi.
Starfað er á Suðurnesjum og höfuðborgarsvæðinu ásamt tilfalandi verkefnum á landsbyggðinni.
Vinnutími frá 08:00– 12:00 að öðruleyti breytilegur vinnutími eftir samkomulagi.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar veitir Guðmundur Helgi Önundarson framkvæmdarstjóri Betri Þrif í síma 421 6353, eftir kl. 13:00 alla virka daga.
Menntunarkröfur:
Bílpróf.
Íslensku- og enskummælandi.
Kröfur um reynslu:
Æskilegt að umsækjandi hafi reynslu af hreingernigum og þrifum.
Æskilegir eiginleikar:
Rík þjónustulund, þægilegt viðmót.
Markviss vinnubrögð, sjálfstæði.
Hæfni í mannlegum samkiptum.
Metnaður og vilji til að ná árangri.
Heilsuhraust/ur.
Stundvísi og áreiðanleiki.
Annað:
Umsækendur þurfa að vera orðnir 20 ára.
Hreint sakavottorð.
Launakerfi er árangurstengt og býður upp á góða tekjumjöguleika.
Við metum fólk af verðleikum.
Við höfum meira að bjóða.
Sækja um starf